spot_img
HomeFréttirGuðmundur frá næstu vikur

Guðmundur frá næstu vikur

 
Bakvörðurinn Guðmundur Jónsson verður frá leik með Njarðvíkingum næstu vikur sökum meiðsla en Guðmundur meiddist í síðustu umferð gegn ÍR þegar innan við mínúta var til leiksloka.
Einar Árni Jóhannsson annar tveggja þjálfara Njarðvíkinga sagði í snörpu samtali við Karfan.is að Guðmundur væri að bíða eftir því að komast í ómskoðun. ,,Eftir fyrstu skoðun er líklegt að hann verði frá í 4-6 vikur, nánari fréttir verða væntanlega eftir ómskoðunina,” sagði Einar sem er nú með Njarðvíkingum í fallsæti Iceland Express deildarinnar.
 
Guðmundur hefur verið með 14,5 stig, 3,3 fráköst og 2,2 stoðsendingar að meðaltali í leik þetta tímabilið og er fjarvera hans vissulega skarð fyrir skildi í Njarðvíkurliðinu.
 
Fréttir
- Auglýsing -