spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaGuðmundur Auðun og Haukur Hreinsson til liðs við Vestra

Guðmundur Auðun og Haukur Hreinsson til liðs við Vestra

Vestfirðingar eru á fullu að undirbúa lið sitt fyrir komandi átök í 1. deild karla. Á dögunum samdi liðið við tvo íslenska leikmenn um að leika með liðinu á komandi leiktíð. Þetta eru þeir Guðmundur Auðun Gunnarsson og Haukur Hreinsson.

Á heimasíðu Vestra segir eftirfarandi um leikmennina: 

Guðmundur Auðun Gunnarsson er 27 ára bakvörður alinn upp í Keflavík þar sem hann lék upp yngri flokka og með meistaraflokki. Einnig hefur Guðmundur leikið með FSu og en síðast lék hann með Reyni frá Sandgerði í 1. deild veturinn 2015-2016, þar sem hann skilaði 11,7 stigum að meðaltali í leik. Þótt Guðmundur hafi tekið sér hlé frá körfubolta um hríð er ljóst að hann bætir mikilvægri reynslu í hópinn sem mun án efa hjálpa liðinu í vetur.

Haukur Hreinsson 21 árs leikmaður sem þekkir Jakann inn og út. Hann æfði og lék með KFÍ í yngri flokkum og og meistaraflokki til ársins 2015 þegar hann færði sig til FSu. Þar sem hann lék allt fram á síðasta tímabil með 4,5 stig, 2,6 stoðsendingar og 2,2 fráköst að meðaltali. Haukur er fjölhæfur og öflugur bakvörður sem verður gaman að sjá á aftur á parketinu hér fyrir vestan.

Ljóst er að einhverjar breytingar verða á liði Vestra á komandi leiktíð. Vestri þarf að sjá á eftir þremur lykilleikmönnum síðasta timabils en þeir Adam Smári Ólafsson, Björn Ásgeir Ásgeirsson og fyrirliðinn Nökkvi Harðarson hafa allir ákveðið að söðla um. Aftur á móti hafa þeir Ingimar Aron Baldursson, Nebojsa Knezevic og Nemanja Knezevic endurnýjað samninga sína við liðið.

Fréttir
- Auglýsing -