17:18
{mosimage}
(Guðjón Skúlason)
Guðjón Skúlason hefur verið ráðinn sem aðstoðarlandsliðsþjálfari karlalandsliðsins. Guðjón þjálfaði kvennalandsliðið síðastliðin tvö ár og er einn leikjahæsti leikmaður karlalandsliðsins frá upphafi. Þetta kemur fram á www.kki.is
Guðjón er jafnframt næstleikjahæsti leikmaður úrvalsdeildar frá upphafi og þjálfaði Keflvíkinga ásamt Fal Harðarsyni tímabilið 2003-2004.
Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari og Guðjón hafa einnig unnið saman áður í teymi við þjálfun Keflavíkurliðsins.
Fyrsta verkefni þeirra félaga saman með landsliðið verður á Írlandi í lok ágúst.
Mynd: [email protected]