Mig langar að setja upp smá pistil hérna þar sem ég viðra áhyggjur mínar á að íþróttastarf félaga á landsbyggðinni eigi hreinlega eftir að minnka töluvert og mögulega hverfa af íþróttamótum. Er ég hér aðallega að tala um Íslandsmót.
Núna í sumar kom hækkun á flugi og var talað um að hækkun þessi hafi verið óumflýjanleg og raun hefði átt að koma mun fyrr og hafa FÍ menn haldið að sér höndum sem er og rétt hvað varðar ÍSÍ fargjöldin. Þetta kann að vera alveg rétt hjá þeim og allir verða jú að reyna reka sín fyrirtæki án þess að skila tapi.
En þetta er lítil huggun fyrir félög út á landi að heyra þannir skýringar sem nota flugið mikið til að komast í mót yfir vetrartímann og þurfa einnig að passa sig á að skila ekki tapi hjá sínum íþróttafélögum.
Ég tek hér gróft reiknisdæmi að Vestan. Flug frá Ísafirði (ÍSÍ fargjald) hefur hækkað frá um 16.000 kr. Í 21.000 kr. Frá því á síðasta starfsári Og er hækkunin því um tæp 25%. Þetta þýðir að ferðir að Vestan yfir tímabil körfuboltans hafa hækkað um um tvær milljónir á uppsettu ÍSÍ verði. Og þarna er ég bara að taka inn í mengið ferðir unglingaflokks og meistaraflokka félagsins. Svo bætist við þessa upphæð gisting og bílaleigubílar.
Svo á svo eftir að taka inn í þetta ferðir krakkanna okkar og eins og venjulega leggst það gjald aðallega á fjölskyldurnar , þó félagið niðurgreiði ferðir að einhverju leyti, en meðal kostnaður við ferðir á mót hjá krökkunum í yngri flokkum á Íslandsmót er um 60.000-70.000 kr. Per iðkanda yfir tímabilið og er ég þá að taka fjölliðamót inn í dæmið. Og þetta er fyrir utan uppihald að sjálfsögðu.
Ég er á engan hátt að setja út á FÍ. Þeir töldu sig þurfa að gera þetta á sínum forsendum og þannig er það bara. En það sem ég hef mestar áhyggjur af er að félög utan af landi dragi saman seglin og fækki ferðum í mót vegna of mikils kostnaðar og þá er illt í efni fyrir íþróttir og félagsstarf.
Ég hef verið í sambandi við félaga frá Akureyri og Egilsstöðum og þar er sama sagan, reyndar er þetta verst hjá íþróttafélögum að austan sem verða að fljúga í allar sínar ferðir.
Hvað er það fyrsta sem félag eins og hér fyrir Vestan gerir, jú það er að reyna að spara eftir bestu getu og það á reyndar við um öll félög sem þurfa að ferðast mikið. Og þá kemur að því sem ég hræðist mest. Það er að félögin fara í auknum mæli að keyra í leiki. Það munar mjög miklu á verði að keyra annars vegar og fljúga hins vegar, þar sem keyrslan er mun ódýrari kostur. En á sama tíma mun hættan á slysum stóraukast. Ég þekki þetta mjög vel á eigin ranni og hef lent í að keyra út af í brjáluðu veðri og vera hætt kominn með mig og mína á leið til keppni. En það verður ekki um mikið annað að velja. Íþróttafélögin hafa ekki efni á að fljúga í allar ferðir miðað við verðmiðann sem er á fluginu í dag.
Ég hef áður sagt að ég hafi miklar áhyggjur af þessari þróun og þá sérstaklega vegna þeirrar hættu sem skapast við að ferðast keyrandi í fjölda ferða í misjöfnu veðri.
Ég vil með þessum stutta pistli vekja athygli á þessum málum og hvet fólk til að hjálpast við að finna lausnir á þessu. Það vita allir hvað íþróttir og félagsstarf er nauðsynlegur partur af lífinu, en það er ekki hægt að finna betri hvata til heilbrigðs lífernis. Það hefur margoft verið sýnt fram á. Þessu er hér með stefnt í hættu.
Hvað er hægt að gera til þess að bregðast við þessu ? Eru héraðssambönd, sérsambönd og aðrir hagsmunaaðilar að ræða þessi mál og reyna að finna lausnir sem geta sameinað sjónarmið FÍ og íþróttahreyfingarinnar ? Eða er engin grundvöllur á þannig viðræðum ? Það þarf ekki að reikna það ýtarlega að hálftómar vélar sem verða hvort sem er að koma Vestur, Norður eða Austur skapa engar tekjur frá íþróttafélögum. Og mögulega leggjast af ferðir vegna þessa, eða fækkar áætluðum ferðurm sem settar eru upp í áætlun FÍ. Það segir sig sjálft að ef tekið er til dæmis keppni í körfunni hér heima verður þannig að ef allir keyra í leiki mun það þýða umtalsvert tekjutap fyrir FÍ og einnig þá sem njóta góðs af því að félögin gisti hér og kaupa sér veitingar.
Þetta er eitthvað sem hvorki við Vestfirðingar viljum og það er mín trú að FÍ vilji þetta alls ekki heldur.
Ég hef ekki minnst á það hér en karfan er ekki ein um þessar áhyggjur. Hér fyrir Vestan eins og á flestum stöðum er blómlegt íþróttalíf og til keppni fara auk okkar, sund, handbolti, fótbolti, frjálsar og fleiri íþróttir og öll erum við í sömu vandræðum hvað ferðak´sotnað varðar og er hann langstærsti kostnaður íþróttafélaganna.
Við (íþróttarheyfingin) erum stærstu félagasamtök landsins og ferðumst mikið til að taka þátt í mörgum mismunandi viðburðum. Ég vil að það verði svo til framtíðar, en eins og ég skrifa hér að ofan hef ég samt miklar áhyggjur af þessari þróun sem er að verða á ferðamáta félaganna og ef ekki á illa að fara verðum við að bregðast við þessu sem fyrst.
Við verðum að gera þetta saman. Íþróttareyfingin, FÍ , sveitarfélagið og ríkisvaldið þurfa að bregðast við þessu vandamáli sem allra fyrst og reyndar þó fyrr hefði verið.
Ég vil einnig minna á að jöfnunarsjóður sem settur var upp frá ríkinu og átti að bregðast við svona útgjöldum hefur minnkað og alls ekki fylgt eftir þeirri stefnu sem sett var fram á sínum tíma. Það er ekki til að minnka áhyggjurnar.
Með íþróttakveðju að Vestan
Gaui.Þ