spot_img
HomeFréttirGuðjón hefur valið stelpurnar sem fara til Hollands

Guðjón hefur valið stelpurnar sem fara til Hollands

{mosimage}

 

Guðjón Skúlason hefur valið þá tólf leikmenn sem spila um helgina sögulegan landsleik, nefnilega fyrsta leik íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi í Evrópukeppni. Íslenska liðið er á leiðinni til Rotterdam í Hollandi þar sem spilað verður við Holland á laugardaginn klukkan 19.30 að íslenskum tíma. Hollenska liðið ætlar sér stóra hluti í keppninni og spilaði meðal annars 11 æfingaleiki á síðustu þremur vikum. 

Íslensku kvennalandsliðin hafa tekið þátt í Evrópukeppni 16 og 18 ára liða undanfarin þrjú ár en þetta er í fyrsta sinn sem a-landsliðið reynir sig í evrópukeppninni. Ísland hefur spilað tvo landsleiki við Holland frá upphafi, unnið einn og tapað einum. Birna Valgarðsdóttir og Hildur Sigurðardóttir spiluðu báðar þessa leiki og Signý Hermannsdóttir annan þeirra. Aðrar í liðinu eru að spila við Holland í fyrsta sinn. 

Þrír leikmenn Margrét Kara Sturludóttir úr Keflavík, Jovana Lilja Stefánsdóttir úr Grindavík og Pálína Gunnlaugsdóttir úr Haukum munu spila sinn fyrsta landsleik í Hollandi en auk þeirra mun Kristrún Sigurjónsdóttir úr Haukum spila sinn fyrsta "alvöru" landsleik á laugardaginn, það er leik í keppni.  Signý Hermannsdóttir úr ÍS verður áfram fyrirliði íslenska landsliðsins en hún gengdi því hlutverki einnig í fyrra. Varafyrirliði liðsins verður síðan Helena Sverrisdóttir úr Haukum. Báðar tóku þær við stórum titlum fyrir hönd félaga sinna í fyrra, Helena tók við Íslandsbikarnum en Signý við bikarmeistarabikarnum. 

Lið Íslands í Hollandi:

#4 – Signý Hermannsdóttir, ÍS (38 leikir, 327 stig)

#5 – Margrét Kara Sturludóttir, Keflavík (Nýliði)

#6 – Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík (7 leikir, 12 stig)

#7 – Þórunn Bjarnadóttir, ÍS (11 leikur, 14 stig)

#8 – Helga Jónsdóttir, ÍS (16 leikir, 31 stig)

#9 – Jovana Lilja Stefánsdóttir, Grindavík (Nýliði)

#10 – Hildur Sigurðardóttir, Grindavík (46 leikir, 252 stig)

#11 – Birna Valgarðsdóttir, Keflavík (65 leikir, 561 stig)

#12 – Pálína Gunnlaugsdóttir, Haukum (Nýliði)

#13 – Kristrún Sigurjónsdóttir, Haukum (2 leikir, 0 stig)

#14 – Helena Sverrisdóttir, Haukum (15 leikir, 194 stig)

#15 – María Ben Erlingsdóttir, Keflavík (13 leikir, 33 stig)

Fyrirliði: Signý Hermannsdóttir

Varafyrirliði: Helena Sverrisdóttir

 

Frétt af www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -