spot_img
HomeFréttirGuðjón frá næstu daga eða vikur

Guðjón frá næstu daga eða vikur

Stjörnumaðurinn Guðjón Lárusson verður frá næstu daga eða vikur þar sem hann er brotinn á fingri. Guðjón fór úr lið á æfingu með Stjörnunni en síðar kom í ljós að hann var brotinn.
,,Ég fór úr lið á vísifingri fyrir 3 vikum á æfingu og kippti honum í lið en ákvað að fara til læknis í vikunni þar sem ég hef ekkert skánað af viti og kom í ljós að ég var brotinn líka. Þannig ég er að bíða eftir að komast til sérfræðings. Síðan bólgnaði ég svo rosalega á hnéinu og hef verið að taka því rólega vegna þess en get líklega farið að skokka í næstu viku," sagði Guðjón í snörpu spjalli við Karfan.is.
 
Guðjón var með 5,9 stig og 3,0 fráköst að meðaltali í leik hjá Stjörnunni á síðustu leiktíð.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -