HomeFréttirGróa snýr aftur: Saknaði körfunnar og fólksins í KR

Gróa snýr aftur: Saknaði körfunnar og fólksins í KR

,,Ég held að þetta komi fyrir mjög marga, að tapa gleðinni í því sem maður er að gera, hvort sem það eru íþróttir eða eitthvað annað," sagði Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir við Karfan.is en hún hefur tekið skóna af hillunni góðu og verður með KR á komandi leiktíð. Guðrún Gróa gerði hlé á körfuboltanum hjá sér til þess að einbeita sér að kraftlyftingum en nú kveður við annan tón.
,,Þetta á ekkert bara við kraftlyftingarnar hjá mér því ég er búin að vera að rembast allt of lengi á röngum forsendum. Það er auðvitað markmið allra íþróttamanna að ná sem bestum árangri en þegar væntingarnar og markmiðin verða að byrgði sem maður burðast með alla daga þá fara þau að vinna gegn manni. Það þurfti orðið ekki annað en slæma æfingu til að ég legðist í hálfgert þunglyndi og var þannig stöðugt að brjóta sjálfa mig niður," sagði Gróa sem þó varð ekki uppskerulaus.
 
,,Það varð því hálfgert áfall að vera komin á alþjóðlegt mót og vinna til verðlauna og ná svo bara rétt að kreista fram bros en vera allt annað en sátt eða ánægð. Ég stóð í þeirr trú að þetta snérist allt um það að ná sem allra lengst og að það að komast á stórmót væri einhver trygging fyrir því að ég yrði ánægð og sátt með sjálfa mig. Svo það má eiginlega segja að ég sé að fara að taka eitt skref til baka og ætla að reyna að njóta þess betur að æfa og keppa í íþróttum. Ég hef bara tekið sjálfa mig of alvarlega, ég er ekki atvinnumanneskja og er aðeins í þessu ánægjunnar vegna en ef hún er ekki til staðar þá er þetta til lítils. Svo skilst mér að lífið sé meira en íþróttir svo maður má ekki láta allt standa og falla með þeim," sagði Gróa sem sér ekki eftir þessu ári í kraftlyftingum.
 
,,Svo viðurkenni ég það alveg að ég saknaði körfunnar og fólksins í KR. Það er samt alls ekki svo að ég sjái eftir þessu ári í kraftlyftingunum. Ég kynntist fullt af frábæru fólki og ég held að ég hafi þroskast svolítið við þetta. Ég er orðin 23 ára og hef verið í íþróttum svo lengi sem ég man eftir mér svo það er kannski kominn tími til að ég átti mig á því hvað ég vil fá út úr því að vera í íþróttum, hvað ég er tilbúin að leggja á líkmann og hvernig formi ég vil vera í."
 
Guðrún Gróa og KR leika á morgun sinn fyrsta leik í Lengjubikar kvenna þegar liðið mætir Njarðvík í Ljónagryfjunni kl. 19:15.
 
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski

Fréttir
- Auglýsing -