Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og komu Memphis Grizzlies grimmir til leiks í Staples Center og skelltu heimamönnum 85-104. Rudy Gay var stigahæstur í sigurliði Grizzlies með 27 stig en hjá Lakers var Kobe Bryant með 28 stig. Lítt þekktari Gasol bróðirinn hafði því betur í nótt en Marc Gasol yngri bróðir Pau Gasol leikur stöðu miðherja hjá Grizzlies.
Önnur úrslit næturinnar:
New York 98-92 Indiana
LA Clippers 98-107 Atlanta
Toronto 79-93 Boston
Cleveland 95-104 Dallas
Portland 100-85 Houston
Sacramento 94-89 Phoenix
Mynd/ Litli Gasol hafði betur gegn þeim stóra í nótt.




