Leikmannahópur meistaraflokks karla hjá Ármanni hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bónus deildinni en Magnús Engill Valgeirsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Magnús kemur til liðsins frá Skallagrími í Borgarnesi, þar sem hann lék síðustu þrjú tímabil í 1. deildinni.
Hann er 22 ára gamall framherji sem ólst upp og sleit barnsskónum hjá Grindavík. Magnúsi er lýst sem afar fjölhæfum leikmanni með frábært skot sem á eftir að styrkja hóp Ármenninga mikið, en miklar væntingar eru gerðar til hans á nýjum heimavelli í Laugardalshöllinni.




