HomeBónus deildinBónus deild karlaGrindvíkingar tóku forystuna

Grindvíkingar tóku forystuna

Grindavík tók forystuna í einvígi sínu gegn Val í undanúrslitum Bónus deildar karla með naumum eins stig sigur í hörkuleik þar sem lokatölur urðu 82 gegn 81. Grindavík leiðir því einvígið 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn.

Í hinu einvígi undanúrslitanna eru það Stjarnan og Tindastóll sem eigast við og þar hafa Garðbæingar sömuleiðis tekið undirtökin með því að leiða seríuna 1-0.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -