spot_img
HomeFréttirGrindavíkursigur í spennandi leik

Grindavíkursigur í spennandi leik

Það glitti í smá jóla/áramótabrag á leik beggja liða í kvöld milli Grindvíkinga og Njarðvíkinga.  Þrátt fyrir það voru fallegar troðslur sem litu dagsins ljós og þar bar hæst að venju í röstinni ein "monster" frá Ólafi Ólafssyni á síðustu sekúndum leiksins. Grindvíkingar sigruðu í spennandi leik þar sem að Guðlaugur Eyjólfsson setti niður risa þrist og í raun kláraði dæmið þegar um 30 sekúndur voru eftir.
 Grindvíkingar byrjuðu leikinn mun betur en Njarðvíkingar komu sterkir inn í annan leikhluta og náðu að komast yfir. Það var aðeins 1 stig sem skildi liðinn í hálfleik eftir að brotið hafði verið á Guðlaugi Eyjólfssyni í þriggjastiga skoti þegar hálfleiks flautan gall. 
 
Í seinni hálfleik var nánast jafnt á öllum tölum en þó voru það Njarðvíkingar sem virstust í loka fjórðungnum ætla að næla sér í fyrstu stiginn á nýju ári. En sem fyrr segir var það Guðlaugur Eyjólfsson sem setti niður þrist og svo í kjölfarið 2 víti sem gerðu vonir Njarðvíkinga að engu. 
 
Ólafur Ólafsson lokaði svo leiknum með "and 1" troðslu og lauk leiknum 86:78 heima mönnum í vil.  Þorleifur Ólafsson bróðir Ólafs lék loksins af sinni getu ef svo má segja. Hans beið erfitt hlutverk fyrir leik að leysa leikstjórnendastöðuna þar sem að Brock Gillespie hafði svikið þá Grindvíkinga. Þorleifur komst vel frá þessum hlutverki, skilaði 17 stigum og 7 stoðsendingum og geri aðrir betur.  Hjá Njarðvík voru það hin kunnulegu 24 stig frá Chris Smith en svo var það Hjörtur Hrafn Einarsson sem bætti við 14 stigum fyrir þá grænklæddu, aðrir langt frá sínu besta. 
 
Fréttir
- Auglýsing -