spot_img
HomeBikarkeppniGrindavík tryggði sér sæti í úrslitaleiknum gegn Keflavík

Grindavík tryggði sér sæti í úrslitaleiknum gegn Keflavík

Grindavík tryggði sig í kvöld í úrslit VÍS bikarkeppni kvenna með sigri gegn Tindastóli í Smáranum, 74-96.

Úrslitaleikur keppninnar fer fram á laugardag, en þar mun Grindavík mæta sigursælasta liði keppninnar frá upphafi, Keflavík.

Fyrir leik

Grindavík hefur í 6 skipti komist í úrslit bikarkeppninnar, en aðeins í tvígang unnið, 2008 og 2015. Tíu ár eru síðan þær voru þar síðast, en árið 2016 máttu þær þola tap gegn Snæfell í úrslitaleik. Tindastóll aftur á móti hefur aldrei komist í úrslit í keppninni.

Gengi liðanna í deildinni nokkuð ólíkt það sem af er leiktíð. Grindavík hefur verið að berjast við topp deildarinnar, unnið 11 leiki af 16 á meðan Tindastóll er í neðri helmingnum með aðeins 5 sigra í þessum fyrstu 16 umferðum.

Grindavík unnið báða leiki sína gegn Tindastóli í deildinni. Með 14 stigum heima í Grindavík í nóvember, en með aðeins 3 stigum á Sauðárkróki þann 21. janúar síðastliðinn.

Mynd / Jaun Gautur Hannesson
Mynd / Jón Gautur Hannesson

Gangur leiks

Grindavík var miklu betri aðilinn í upphafi. Ef ekki hefði verið fyrir Maddie Sutton í liði Tindastóls hefðu þær nánast gert út um leikinn strax á upphafsmínútunum, en restin af liðinu kemur þó aðeins til þegar líður á fyrsta fjórðunginn. Grindavík þó ógnarsterkar, 6 stigum yfir, 21-27, þar sem Ellen Nystrom var komin með 12 að fyrsta leikhluta loknum.

Varnarlega gerir Tindastóll betur í öðrum leikhlutanum og hægt en örugglega vinna þær forystu Grindavík niður. Leikurinn er í járnum lengst af í fjórðungnum, en undir lok hans nær Grindavík sterku áhlaupi sem setur þær aftu yfir og leiða þær með 3 stigum í hálfleik, 44-47.

Mestu munaði um Ellen Nystrom sem var með 15 og Abdi Farhiya sem var með 14 fyrir Grindavík í fyrri hálfleiknum, en fyrir Stólana var Marta Hermida komin með 15 stig og Maddie Sutton 11 stig þegar í hálfleik var komið.

Leikurinn er áfram jafn og spennandi í upphafi seinni hálfleiksins og áfram er það Grindavík sem leiðir. Undir lok þriðja fjórðungsins ná þær loksins áhlaupinu sem slítur þær þægilega frá Tindastóli og er munurinn 13 stig fyrir lokaleikhlutann, 57-70.

Grindavík lætur kné fylgja kviði í upphafi þess fjórða og eru komnar 19 stigum yfir þegar um átta mínútur eru til leiksloka, 57-76. Eftirleikurinn að er virtist nokkuð einfaldur fyrir þær þó Stólakonur hafi haldið áfram að reyna. Virtist hreinlega ekki vera detta fyrir þær. Niðurstaðan að lokum nokkuð öruggur sigur Grindavíkur, 74-99.

Mynd / Jaun Gautur Hannesson
Mynd / Jón Gautur Hannesson

Kjarninn

Það var ekki að sjá að annað liðið væri í efsta sæti Bónus deildarinnar og hitt í áttunda sætinu lengst af í kvöld. Stólarnir börðust á löngum köflum gífurlega vel í leiknum og sýndu það að það var ekkert óvart að það væru komnar svona langt.

Grindavík þó betra liðið í flestum skilningi. Skutu boltanum betur og fráköstuðu betur. Það skilað þeim sigrinum. Ætti að verða áhugaverður úrslitaleikur þeirra gegn Keflavík á laugardaginn, sannkallaður Suðurnesjaslagur.

Stigahæstar

Abby Beeman mætti svo sannarlega til leiks í seinni hálfleiknum í kvöld. Skilaði í heild 29 stigum, en næst henni í stigaskori hjá Grindavík var Ellen Nystrom með 25 stig. Fyrir Tindastól voru stigahæstar Madison Sutton með 26 stig og Marta Hermida með 22 stig.

Hvað svo?

Grindavík fer í úrslit VÍS bikarkeppninnar og leikur þar gegn Keflavík komandi laugardag, en Keflavík lagði Hamar/Þór í fyrri undanúrslitaleiknum fyrr í kvöld.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -