HomeBónus deildinBónus deild kvennaGrindavík ryksugaði Val úr keppni

Grindavík ryksugaði Val úr keppni

Í kvöld fór fram þriðji leikur Vals og Grindavíkur í 8 liða úrslitum Bónusdeildar kvenna. Staðan fyrir leikinn var 2-0 fyrir gestina frá Grindavík. Því ljóst að Valsstellpur mættu til leiks með bakið kyrfilega upp við vegg. Báðir leikirnir hingað til hafa verið jafnir og spennandi og því mátti búast við hörkuleik. Leikurinn var aldrei spennandi, Grindavík sláturðu fyrsta leikhluta, héldu haus í öðrum leikhluta og þrátt fyrir mikla ákefð vrá Valskonum í þeim þriðja, þá var forysta gestanna mjög mikil. Valskonur héldu áfram að reyna að saxa á forstkotið en forskotið var bara of mikið og Grindavík sigraði sanngjarnt 72-90.

Það er óhætt að segja að Grindavík hafi byrjað mun betur, skoruðu fyrstu 13 stigin í leiknum, þegar Jamil neyddist til að taka leikhlé, Valskonur ekki skorað körfu í 4  mínútur.Leikhléið gerði ekkert og gestirnir héldu áfram að hitta á meðan heimakonur hittu ekkert. Þegar um 4 mínútur voru eftir var staðan 0-22!! Valur skoraði sín fyrstu stig þegar rúmlega 3 mínútur voru eftir að leikhlutanum. Grindavík var með 70% skotnýtingu á móti 25% hjá Val, enda leiddu þær með 22 stga mun, 11-33.

Þótt leikur Valskvenna vissulega batnaði í öðrum leikhluta, enda hefði annað verið lögreglumál, þá náðu þær ekkert að saxa á forskotið að neinu ráði. Grindavík voru vel vakandi og virtust alltaf komast í opið skot. Á meðan Valskonur ætluðu að treysta meira á einstaklingsgæði, með misjöfnum árangri. Grindavík leiddi í hálfleik, 33-54.

Valskonur komu síðan dýrvitlausar út í seinni hálfleikinn, spiluðu mjög aggressíva vörn,  sem virtist slá gestina aðeins út af laginu, því þær skoruðu sín fyrstu stig í leikhlutanum  þegar næstum 3 mínútur voru liðnar af honum. Stemmingin var öll kominn Valsmeginn, Booker mættur með fánann og allt annað að sjá til heimakvenna, Lalli, þjálfari Grindavíkur var nóg boðið um miðjan leikhluta og tók leikhlé, enda bara búnar að skora 3 stig. Það svínvirkaði og Beeman setti 3 stig niður og var fljót að líta á  Valsbekkinn.  Grindavík leiddi eftir 3 leikhluta, 56-73.

Valskonur voru komnar með blóðbragðið og héldu áfram sinni ákeðf og náðu að minnka muninn fljótlega undir 10 stig og skyndilega stefndi í alvöru leik. Grindavík var auðvitað á öðru máli og settu muninn fljótlega í 16 stig. Krafturinn og orkann dvínaði hjá heimakonum og Grindavík gengu á lagið og sigldu þessu í hús og það má segja að sigurinn hafi aldrei verið í hættu. Grindvískur sigur, 72-90.

Valskonur eru komnar í snemmbúið sumarfrí en Grindavík þarf að sjá hvernig einvígið á milli KR og Keflavík fari til að vita hvort þær etja næst kappi við Hauka eða Njarðvík.

Hjá Val var Reshawna Stone stighæst með 24 stig, Alyssa Cerano var með 15 stig og Ásta Júlía með 12 stig. Hjá Grindavík var Abby Beeman frábær með 23 stig, Farhiya Abdi með 15 stig og Ísabella með 14 stig og 12 fráköst.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -