Það var boðið upp á hörkuleik um helgina þegar Grindavík og KFÍ mættust í úrslitakeppni 1.deildar kvenna um sæti í efstu deild að ári. Grindavíkurstúlkur byrjuðu leikinn betur og komust í 7-2 og síðan 14-7 en KFÍ átti góðan endasprett í 1.leikhluta og skoruðu seinustu 8 stigin í leikhlutanum. Þar af leiðandi leiddi KFÍ með 1 stigi eftir fyrsta leikhluta, 14-15. Ingibjörg Sigurðardóttir var frábær í 1.leikhluta og skoraði 10 stig ásamt því að gefa eina stoðsendingu og átti því þátt í 12 af 14 stigum hjá Grindavík. Ótrúlega efnilegur íþróttamaður sem hafði verið á landsliðsæfingu í knattspyrnu fyrr sama dag og engin þreytumerki að sjá. Hjá KFÍ var einnig ung og efnileg stelpa sem stóð sig vel í þessum leikhluta, Eva Margrét Kristjánsdóttir sem var stigahæst hjá KFÍ með 8 stig.
Nokkuð jafnræði var með liðunum í byrjun 2.leikhluta en hægt og rólega stigu Grindavíkurstúlkur fram úr og unnu þær 2.leikhluta 19-10 og leiddu því með 8 stigum í hálfleik 33-25. Stigahæstar í hálfleik hjá Grindavík voru Ingibjörg Sigurðardóttir með 15stig og Jeanne Sicat með 9 stig. Hjá KFÍ var Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir með 9 stig og Eva Margrét Kristjánsdóttir með 8 stig.
Baráttan í 3.leikhluta var mikil og gekk báðum liðum illa að skoraog skipti því hver karfa miklu máli. KFÍ, leiddar áfram af Sólveigu og Evu Margréti, áttu þó auðveldara með að skora og vann KFÍ leikhlutann 14-10 og staðan fyrir lokaleikhlutann 43-39 fyrir Grindavík.
4.leikhluti var jafn og spenanndi og ljóst að KFÍ-stelpur ætluðu að leggja allt undir til að jafna leikinn og á 35.mínútu leiksins jafnaði Vera Óðinsdóttir leikinn fyrir KFÍ 48-48 og spennan í hámarki. Stuttu síðar setur Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir niður 2 víti fyrir Grindavík og eykur muninn í 50-48. Næstu mínútur einkenndust af mikilli baráttu og mistökum hjá báðum liðum og næstu stig leiksins komu frá Berglindi Önnu Magnúsdóttur hjá Grindavík er hún setti niður 2 víti þegar rúmlega mínúta var eftir af leiknum og staðan orðin 52-48.
Á þessum tíma bjuggust flestir við því að sigurinn ætti að vera komin í höfn hjá Grindavík enda hafði gengið illa hjá báðum liðum að skora en Sólveig Helga setur niður góða körfu fyrir KFÍ þegar 30 sekúndur eru eftir og minnkar muninn í 52-50. Grindavíkurstúlkur halda í sókn og strax var brotið á leikmanni Grindavíkur og Jeanne Sicat fer á vítalínuna þegar 25 sekúndur eru eftir. Jeanne klikkar úr fyrra skotinu en hittir úr því seinna og staðan þá orðin 53-50 fyrir Grindavík. KFÍ taka leikhlé og halda svo í sókn og augljóst að Sólveig Helga átti að taka lokaskotið. Boltinn fer síðan útaf undir körfunni þegar um 7 sekúndur eru eftir að leiknum og KFÍ með innkast. Grindvíkingar leggja allt í að tryggja að 3ja stiga skyttur KFÍ opnist ekki og svo fór að miðherji þeirra, Svandís Anna Sigurðardóttir fékk boltann við 3ja stigalínuna og tekur erfitt 3ja stiga skot sem geigar en Berglind Anna, leikmaður Grindavíkur brýtur á henni í skotinu svo Svandís fær 3 víti. Svandís setur örugglega niður fyrsta vítið en klikkar síðan úr næstu tveimur. Sandra Ýr Grétarsdóttir, leikmaður Grindavíkur, nær frákastinu og strax er brotið á henni. Hún fær síðan 2 víti og setur fyrra vítið ofan í, eftir að boltinn hafði skoppað á hringnum, en klikkar úr því síðara og leiktíminn rennur út. 54-51 sigur hjá Grindavík í æsispennandi leik.
Hjá Grindavík átti Ingibjörg Sigurðardóttir frábæran leik með 19 stig, 8 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 stolna. Jeanne Sicat stýrði leik liðsins vel ásamt því að skora 13 stig, Jóhanna Rún Styrmisdóttir var með 6 stig, 9 fráköst og 5 blokk og Berglind Anna Magnúsdóttir var einnig með 6 stig og 11 fráköst.
Hjá KFÍ var Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir með 18 stig og 6 fráköst, Eva Margrét Kristjánsdóttir með 13 stig en hún meiddist snemma í 4 leikhluta og gat því ekki klárað leikinn og munaði um minna fyrir KFÍ. Svandís Anna Sigurðardóttir var síðan með 8 stig og 13 fráköst.
Í kvöld verður seinni leikur KFÍ og Grindavíkur kl. 19.15 á Ísafirði og vonandi munu margir mæta því leikir þessara liða hafa verið einstaklega skemmtilegir og spennandi í vetur.
Vinni Grindavík mun liðið spila í efstu deild að ári en vinni KFÍ verður oddaleikur í Grindavík á miðvikudaginn kemur.
Mynd/ Karl West – Grindvíkingar fagna eftir sigurinn á KFÍ.
Umfjöllun/ Bryndís Gunnlaugsdóttir




