Grindavík jafnaði í kvöld metin 1-1 í átta liða úrslitum gegn Njarðvík í Bónusdeild karla. Lokatölur í IceMar-Höllinni 84-86 þar sem Njarðvíkingar áttu lokaskot leiksins til að koma leiknum í framlengingu en gestirnir úr Grindavík sluppu með skrekkinn þar sem skot frá Sven og Veigari dönsuðu af hringnum. Semple leiddi Grindavík í kvöld með 22 stig og Pargo bætti við 20, þá var Mortensen flottur með 17 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar hjá gestunum. Hjá Njarðvík var Lautier atkvæðamestur með 30 stig og þeir Milka og Veigar báðir með 14.
Heimamenn í Njarðvík voru ögn sprækari í fyrri hálfleik og leiddu 49-44 í leikhléi. Að loknum fyrsta var staðan 24-20 og mest náðu Njarðvíkingar 13 stiga forskoti en sterk rispa frá Pargo í öðrum leikhluta færði Grindvíkinga nærri.
Lautier var með 19 stig hjá Njarðvík í hálfleik en hjá Grindvíkingum var Semple stigahæstur með 12 stig. Opinn og fjörugur fyrri hálfleikur þar sem Valur Orri kom flott af Grindavíkurbekknum og sömuleiðis þeir Snjólfur og Brynjar Njarðvíkurmegin en Brynjar var eini maður vallarins með 3 villur í fyrri hálfleik.

Grindvíkingar voru beittari í þriðja og unnu hann 18-24 og leiddu því 67-68 fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Jafnt var á flestum tölum í fjórða og það voru Njarðvíkingar sem áttu lokasókn leiksins þegar staðan var 84-86 Grindavík í vil. Sven fékk tvö skot á lokasekúndunum til að jafna metin en hvorugt vildi niður og Grindavík fagnaði því sigri og staðan 1-1 í rimmunni.
Liðin mætast í sínum þriðja leik þann 10. apríl næstkomandi á heimavelli Grindavíkur og fólk hvatt til að næla sér í miða í tæka tíð því það var svakaleg stemmning í IceMar-Höllinni í kvöld. Þessi sería er heldur betur að vinda upp á sig og hefur hún þegar tekið margan sérfræðinginn og spámanninn á ipponi!
Ef við lítum svo aðeins nær á leik kvöldsins þá voru Njarðvíkingar að hafa betur í frákastabaráttunni en voru með 15 tapaða bolta í kvöld á móti 10 hjá Grindavík. Bæði lið eru að fá sín hvor sex stigin af bekknum í kvöld og þegar líður á þyrfti það framlag að vera meira í herbúðum beggja. Svo maður gerist nú smámunasamur þá voru sex víti í ræsinu hjá heimamönnum og gætu sumir sagt að þar liggur leikurinn en slík gífuryrði er yfirleitt erfitt að sanna.
Myndir/ Gunnar Jónatansson




