Haukar og Grindavík mættust í Reykjanesmótinu í gærkvöld í Schenker-höllinni og höfðu Íslandsmeistararnir betur, 66-73. Þessi sjö stiga sigur kom þó ekki fyrr en á síðustu hálfu mínútu leiksins þar sem Grindvíkingar kláruðu leikinn á vítalínunni.
Leikurinn var jafn alveg fram í fjórða leikhluta en þá náðu Grindvíkingar að komast yfir í leiknum í fyrsta skipti frá því í fyrsta leikhluta en Haukar voru að spila fínan bolta og ætla sér augljóslega að verða fyrirferðamiklir í 1. deildinni. Grindvíkingar voru fjarri sínu besta og munu bara vaxa með hverjum leiknum enda nokkur endurnýjun orðin í herbúðum gulra.
Haukar leiddu í hálfleik, 29-28, og náðu mest 6 stiga forystu undir lok þriðja leikhluta þegar Grindvíkingar fengu dæmdar á sig þrjár tæknivillur í röð og Jóhanni Árna Ólafssyni var vikið af leikvelli. Haukar virtust ekki ná að nýta sér þetta lánleysi Grindvíkinga og snéru gestirnir dæminu sér í vil. Þar var fremstur meðal jafningja hinn ungi Jón Axel Guðmundsson sem átti stórleik í fjórða leikhluta og fíflaði varnarmenn Hauka hvað eftir annað.
Grindavík vann að lokum 66-73 en Haukar höfðu tækifæri til að minnka muninn í tvö stig en þeir höfðu boltann þegar að 25 sek lifðu leiks en þessi í stað kláraði Grindavík leikinn á vítalínunni í árangurslausri tilraun til að stela sigri.
Aaron Broussard var stigahæstur Grindvíkinga með 32 stig og 14 fráköst og Sammy Zeglinski var með 11 stig og 7 fráköst
Hjá Haukum var Haukur Óskarsson stigahæstur með 18 stig, Aaryon Williams var með 17 stig og 8 fráköst og Helgi Björn Einarsson var með 12 stig og 14 fráköst.