HomeFréttirGrindavík deildarmeistari í 1. deild - mæta KFÍ í úrslitum um sæti...

Grindavík deildarmeistari í 1. deild – mæta KFÍ í úrslitum um sæti í úrvalsdeild

Í dag áttust við Grindavík og KFÍ í uppgjöri efstu liða í 1. deild kvenna. Þetta var seinasti leikurinn í 1.deild kvenna áður en úrslitakeppnin byrjar og ljóst var að Grindavíkurstúlkur voru orðnar deildarmeitarar óháð því hvernig leikurinn færi. Hannes Jónsson, formaður KKÍ, var því mættur á hliðarlínuna með deildarmeistaratitilinn sem afhenda átti liði Grindavíkur í lok leiksins. KFÍ stúlkur voru að spila sinn þriðja leik þessa helgina og eftir sigur KFÍ gegn Laugdælum á laugardag var ljóst að KFÍ stelpur myndu vera í 2.sæti deildarinnar og mæta því Grindavík í úrslitakeppni 1. deildar kvenna sem hefst næstu helgi.
KFÍ stelpur byrjuðu leikinn betur og var staðan 10-14 fyrir KFÍ í lok fyrsta leikhluta og voru Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir (6 stig) og Svandís Anna Sigurðardóttir ( 7 stig) að bera uppi sóknarleik KFÍ en Jeanne Sicat var með 5 stig fyrir Grindavík. KFÍ-stelpur héldu áfram að auka forskot sitt í 2.leikhluta og voru ávallt skrefi á undan Grindavík og í hálfleik var staðan 20-29 fyrir KFÍ. Stigahæstar í hálfleik voru hjá KFÍ, Sólveig Helga og Svandís, báðar með 11 stig og hjá Grindavík var Jeanne og Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir með 5 stig hvor.
 
Ljóst var að Jóhann Ólafsson hafði hvatt Grindavíkurstelpurnar áfram í hálfleik en þær mættu mjög öflugar til leiks í þriðja leikhluta. Þrátt fyrir það áttu þær mjög erfitt að brjóta niður sterka svæðisvörn KFÍ. Þær unnu þó leikhlutan 13-10 og staðan fyrir lokaleikhlutan því 33-38 og spennan farin að aukast. Sama barátta hélt áfram í fjórða leikhluta og leit út fyrir að KFÍ myndi fara með sigur að hólmi. En í stöðunni 39-45 og rúmlega 6 mínútur fóru Grindavíkur-stelpur á flug, pressan fór að ganga betur og þær fengu auðveldari körfur í framhaldinu að því að þær fóru loksins að keyra á körfuna gegn svæðisvörn KFÍ. Á meðan allt gekk upp hjá Grindavíkur-stelpum var ljóst að þreytan var farin að segja til sín hjá KFÍ sem voru að spila sinn 3ja leik þessa helgi. Grindavíkurstelpur unnu fjórða leikhlutann 27-13 og skoraði KFÍ aðeins 6 stig seinustu 6 mínútur leiksins gegn 21 stigi hjá Grindavík.
 
Hjá Grindavík var Jeanne Sicat með 16 stig og 4 stoðsendingar, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir með 13 stig, Berglind Anna Magnúsdóttir með 10 stig og 12 fráköst, og Ingibjörg Sigurðardóttir með 10 stig. Þessar stelpur ásamt Jóhönnu Rún Styrmisdóttur báru af í liði Grindavíkur.
 
Hjá KFÍ voru það reynsluboltarnir Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir (14 stig og 8 fráköst) og Svandís Anna Sigurðardóttir (13 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar) sem báru uppi leik liðsins. Auk þess átti Hafdís Gunnarsdóttir góðan seinni hálfleik (12 stig og 4 stoðsendingar) og Eva Margrét Kristjánsdóttir átti góðan fyrri hálfleik (8 stig)
 
Leikurinn var einstaklega skemmtilegur og flottur körfubolti sem var í boði fyrir áhorfendur. Liðin eru mjög ólík en Grindavíkurliðið er mjög ungt og mikið um snögga leikmenn meðan fjórir leikmenn í byrjunarliði KFÍ eru það sem flokka má undir reynslubolta í kvennakörfubolta. Körfuboltaáhugamenn eru hvattir til þess að mæta á leiki þessara liða í úrslitakeppninni og ef spilamennskan verður eins og um helgina ætti engin að verða fyrir vonbrigðum.
 
Grindavíkurstúlkur – til hamingju með deildarmeistaratitilinn
 
Texti og myndir: Bryndís Gunnlaugsdóttir
  
Fréttir
- Auglýsing -