HomeFréttirGrindavík bikarmeistari í 9. flokki karla

Grindavík bikarmeistari í 9. flokki karla

Grindavík vann fyrsta bikarmeistaratitil dagsins með góðum sigri á Keflavík að Hlíðarenda.  Grindavík stýrði leiknum frá upphafi til enda en Keflavík var þó aldrei langt undan.  Sérstök dómnefnd valdi Hilmir Kristjánsson mann leiksins en hann skilaði tröllatvennu, 25 stig, 16 fráköst, 2 varin skot og 2 stolnir boltar.  Næstir á blað hjá Grindvíkingum voru Aðalsteinn Pétursson með 14 stig og 4 fráköst og Aron Friðriksson með 7 stig og 6 fráköst.  Í liði Keflavíkur átti Guðmundur Ólafsson virkilega góðan leik með 18 stig og 7 fráköst en næstir á blað voru Arnþór Ingvason með 12 stig og 7 fráköst og Sigurþór Sigurþórsson með 10 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar.  
 Grindavík mætti af krafti til leiks og höfðu náð 9-0 forskoti strax eftir þrjár mínútur af leik.  Fyrstu stig Keflvíkinga komu svo frá Tryggva Ólafssyni af vítalínunni um mínútu síðar.  Grindvíkingar pressuðu Keflvíkinga hátt og slóu þá nokkuð út af laginu.  Keflvíkingar unnu þó á og minnkuðu muninn smám saman.  Þegar fyrsta leikhluta lauk munaði 6 stigum á liðunum, 14-8.  

 

Keflvíkingar minnkuðu muninn áfram í byrjun annars leikhluta og höfðu náð muninum niður í tvö stig, 14-12 þegar Grindavík tók leikhlé.  Þá tóku Grindvíkingar við sér og skoruðu 9 stig gegn næstu 2 stigum Keflavíkur og breyttu stöðunni í 23-14. Hilmar Kristjánsson og Aðalsteinn Pétursson áttu flotta spretti fyrir Grindvíkinga en Hilmir setti flottan þrist og varði svo skot í næstu sókn.  Grindvíkingar náðu sínu mesta forskoti fram að því í leiknum á lokamínútu fyrri hálfleiks í stöðuni 31-21.  Það var hins vegar Arnþór Ingvason sem átti síðasta orðið fyrir Keflavík í fyrri hálfleik og minnkaði muninn niður í 8 stig, 31-23.  

 

Stigahæstur í hálfleik í liði Grindavíkur var Aðalsteinn Pétursson með 12 stig en næstir voru Hilmir Kristjánsson með 9 stig og 5 fráköst og Aron Friðriksson með 5 stig og 3 stoðsendingar.  Í liði Keflavíkur voru það Guðmundur Ólafsson og Arnþór Ingvason með 8 stig hvor en Arnþór bætti einnig við 5 fráköstum.  Næsti maður á blað hjá Kelfavík var Tryggvi Ólafsson með 3 stig og 2 stoðsendingar.  

 

Grindvíkingar gáfu ekkert eftir í byrjun seinni hálfleiks og með Hilmir í broddi fylkingar héldu þeir uppteknum hætti.  Keflavík tók leikhlé þegar þriðji leikhluti var hálfnaður og munurinn á liðunum 10 stig, 38-28.  Grindvíkingar náðu mest 13 stiga mun í stöðunni 42-29.  Keflavík hleypti þeim þó ekki lengra frá sér en það og unnu sig hægt og rólega aftur inní leikinn. Guðmundur Ólafsson átti flottan kafla fyrir Keflavík en hann skoraði 7 stig í þriðja leikhluta og hélt sínum mönnum inní leiknum.  Þegar flautað var til loka þriðja leikhluta munaði 9 stigum á liðunum, 44-35.  

 

Það voru hins vegar Keflvíkingar sem mættu betur stemmdir til leiks í fjórða leikhluta og þegar þrjár mínútur voru liðnar höfðu þeir minnkað muninn niður í 5 stig, 41-46.  Keflvíkingar komust þó ekki nær en það þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir.  Hilmir Kristjánsson reyndist þeim of sterkur á lokakaflanum en hann tók af skarið fyrir Grindvíkinga þegar á reyndi.  Grindavík hafði í lokin 6 stiga sigur, 60-54 og eru því vel að bikarmeistaratitlinum komnir.  

 

karfan.is óskar Grindavík til hamingju með bikarmeistaratitilinn í 9. flokki karla

 

Mynd: [email protected]

Umfjöllun: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -