Körfuboltaáhugamenn fengu e.t.v. sýn inn í framtíðina í kvöld er Njarðvíkingar mættu í DHL-höllina. Sería þessara liða á síðustu leiktíð var svaðaleg en því miður voru Pavel og Helgi sem og Stefan fjarri góðu gamni að þessu sinni. Allir vita að Haukur Helgi er nú kominn í grænt og leikurinn kannski eins og að horfa á landsliðsæfingu þar sem skipt er í tvö. Hvað sem því líður – fín mæting í húsið og von á toppleik!
Heimamenn byrjuðu grimmt og Björn kom KR, ég endurtek KR, í 7-2 með flottum þristi. Craion gerði sig einnig strax gildan á meðan Haukur Helgi var að venjast litnum. Bæði lið börðust vel varnarlega til að byrja með en eftir því sem á leið gáfu gestirnir eftir og er fyrsta fjórðungi lauk höfðu KR smellt 29 stigum á gestina gegn 22.
Craion virtist skora svona þegar hann nennti því og var Njarðvíkingum ansi erfiður í kvöld. Hann kom KR í 32-22 og Brilli, Darri og Þórir smelltu hver sínum þristinum í framhaldinu og staðan 41-28. Gestirnir virust algerlega heillum horfnir varnarlega og flest skot KR-inga galopin. Njarðvíkingar náðu að svara með smá spretti sem dugði þó skammt. Ef Craion skoraði ekki fann hann samherja í einskis manns landi og Þórir setti þrist og staðan orðin 52-34. Ljónin voru hikandi sóknarlega og Haukur Helgi hefði mátt hafa frasann góða um að láta leikinn koma til sín en ekki öfugt ofar í huga. Staðan 58-41 í hálfleik og von gestanna veik.
Ægir Þór Steinarsson lokar fyrri hálfleik
Njarðvíkingar sóttu smá styrk úr leikhléinu en hann fleytti þeim ekki langt. Segja má að Craion hafi haldið áfram að skilja á milli liðanna og undirritaður sér ekki hvers konar kvikindi gæti stöðvað hann undir körfunni. Það var hins vegar hinn stórefnilegi Þórir Guðmundur sem tæmdi gersamlega úr saltstauknum í gapandi sár gestanna með 11 stigum í röð! Staðan 83-61 og leikurinn svo gott sem búinn. Eftir leikhlutann höfðu KR sett 88 stig gegn 64 og það hefði verið hægt að setja spurningarmerki fyrir aftan varnarleik gestanna hefðu fundist brot af honum einhvers staðar.
Lokaleikhlutinn var formsatriði. Tölfræðilega lauk Craion leik á skemmtilegan hátt þegar hann sýndi fjölhæfni sína og smellti eitt stykki þristi – þar fór hann í 30 stig í leiknum og kom sínum mönnum jafn mörgum stigum yfir! Lokatölur 105-76.
KR-liðið spilaði vel í kvöld og hætti aldrei að berjast fyrir sínu sama hver staðan var. Helgi og Pavel eru báðir frá en það bar ekkert á því. Áræðni þeirra var til fyrirmyndar og varnarleikurinn ekki síður. Njarðvíkingar eru ekki alveg klárir í bátana en þeir munu verða það – það er bara október. Haukur Helgi á klárlega eftir að skila meiru til liðsins en í kvöld enda vel að íþróttum búinn.
Þórir spilaði frábærlega í kvöld og setti 21 stig í örfáum skotum. Þegar Helgi og Pavel koma aftur þarf Finnur Freyr að skreppa í Bónus og athuga hvort finna megi auka leikmínútur á tilboði svo allir komist að. Craion gerði svo sitt og jafnvel gott betur, endaði með 30 stig og 6 stoðsendingar.
Hjá Njarðvík skilaði Simmons ágætum tölum með 24 stigum og 9 fráköstum. Helgarnir Haukur og Ólafur komu þar á eftir með 13 og 14 stig en þeir sem og liðið í heild getur mikið betur – og undirritaður fullyrðir að það munum við fá að sjá snemma á næsta ári.
Umfjöllun/ Kári Viðarsson
Myndir/ Jón Björn