Fjölnismenn hafa fest tvo bandaríska leikmenn fyrir næstu leiktíð en það eru þeir Morgan Grim og Chris Matthews. Hjalti Þór Vilhjálmsson nýráðinn þjálfari Fjölnismanna staðfesti þetta við Karfan.is fyrir skemmstu.
Grim er framherji/miðherji sem lék með Utah State háskólanum í NCAA deildinni á síðasta tímabili þar sem hann var með 9,1 stig og 6,1 frákast að meðaltali í leik. Matthews er skotbakvörður sem tímabilið 2009-2010 lék með St. Bonaventure háskólanum og var þá með 12,6 stig að meðaltali í leik en á síðasta tímabili var hann síðast hjá Washington Madness í Eastern Basketball Alliance og þar gerði kappinn 30,5 stig að meðaltali í leik.
Mynd/ Chris Matthews






