spot_img
HomeFréttirGrillin tendruð í Toyota-höllinni á morgun

Grillin tendruð í Toyota-höllinni á morgun

Á morgun fer fram oddaviðureign Keflavíkur og Vals í undanúrslitum Domino´s deildar kvenna. Liðin hafa unnið aðeins útileiki í seríunni, staðan 2-2 og á morgun ræðst hvort liðið mætir KR í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.
 
Keflvíkingar tendra grillin kl. 17:30 og bjóða upp á hamborgara og meðlæti fyrir leikinn gegn vægu gjaldi. Á heimasíðu Keflavíkur fyrir leikinn segir:
 
Allur sá fjöldi stuðningsmanna sem litið hefur við í Toyotahöllinni um sl. tvær helgar er beðinn að mæta á svæðið og rífa þakið af húsinu. Óumdeilt er að stuðningur áhorfenda virkar sem 6. maður og því mikilvægt að sem flestir láti sjá sig. Stelpurnar voru gríðarlega ánægðar með mætinguna á síðasta leik en skv. talningu aðstoðarþjálfara kvennaliðsins, þeim Erlu Reynisdóttir og Marínu Rós Karlsdóttur, munu 499 manns hafa mætt á leikinn en þær höfðu heitið syngja Adele slagarann “someone like you” til handa stuðningsmönnum í hálfleik ef 500 manns mættu. Í þetta skiptið hafa þær ákveðið að heita á stuðningsmenn aftur og lofa “dansshowi” á miðju gólfinu í hálfleik mæti fleiri en 500 manns. Náum þessu 500 manna takmarki svo hægt verði að herma þetta show upp á stúlkurnar. Sjón ætti að verða sögu ríkari!
 
Karfan.is hefur heimildir fyrir því að fleiri en 500 hafi mætt á síðasta leik í Keflavík en þær Erla og Marín hafi þá skorast undan. Sjáum til hvort þær efni loforðið að þessu sinni.
  
Fréttir
- Auglýsing -