spot_img
HomeFréttirGriffin og félagar í Clippers enda 13 leikja útisigurgöngu Heat

Griffin og félagar í Clippers enda 13 leikja útisigurgöngu Heat

 
Í nótt fóru tólf leikir fram í NBA deildinni þar sem Blake Griffin og félagar í LA Clippers bundu enda á 13 leikja útisigurgöngu Miami Heat. Lokatölur í Staples Center voru 111-105 Clippers í vil.
Eric Gordon gerði 26 stig og gaf 6 stoðsendingar í liði Clippers og Blake Griffin bætti við 24 stigum og 14 fráköstum. Þá var Baron Davis með 20 stig og 9 stoðsendingar. Aðrir leikmenn liðsins bættu við 40 stigum en hlutföllin voru nokkuð öðruvísi í herbúðum Heat. Dwyane Wade gerði 31 stig, LeBron James 27 og Chris Bosh 26. Aðrir leikmenn liðsins skoruðu samtals 21 stig.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Charlotte 96-91 Chicago
Indiana 102-89 Dallas
Toronto 101-104 Atlanta
Boston 119-95 Sacramento
Detroit 99-107 Memphis
Milwaukee 84-91 San Antonio
New Orleans 92-89 Orlando
Houston 112-118 Oklahoma
Phoenix 118-109 New Jersey
Utah 131-125 New York
Golden State 110-115 LA Lakers
 
Mynd/ Griffin og Clippers lögðu Miami í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -