Oftast er það nú Blake Griffin sem sér um að "plakat-a" andstæðinga sinna með hreint út sagt rosalegum loftfimleikum. En í vikunni fékk kappinn að bragða af sínu eigin meðali þegar Kevin Garnett hlóð í eina sem maður hélt að hann gæti ekki lengur. Í það minnsta hafa slík tilþrif verið lögð til hliðar í þó nokkurn tíma hjá Garnett. Sjón er sögu ríkari.