U20 landslið kvenna mætir liði Ítalíu í dag klukkan 17:30 í lokaleik sínum í riðlakeppni Evrópumótsins í Alytus í Litháen.
Öll liðin í riðlinum fara áfram í 16-liða úrslit, en leikurinn í dag er engu að síður gríðarlega mikilvægur fyrir framhaldið. Ísland hefur til þessa unnið einn leik og tapað einum á mótinu og getur með sigri í dag tryggt sér annað sæti riðilsins.
Með því að tryggja sér annað sætið mætir Ísland á pappírnum lakari andstæðingi í 16-liða úrslitunum, sem eykur líkurnar á að komast enn lengra á mótinu. Það er því til mikils að vinna fyrir íslenska liðið í dag og ljóst að stelpurnar munu selja sig dýrt.
Hér fyrir neðan er hægt að horfa á leikinn í beinni útsendingu




