Tindastóll hafði góðan sigur á Skallagrím í Borgarnesi er liðin mættust í gærkvöldi. Heimamenn höfðu undirtökin nánast allan leikinn en frábær endasprettur Tindastóls tryggði þeim góðan sigur. Nánari umfjöllun um leikinn má sjá hér.
Stuðningsmenn beggja liða fóru hamförum og var stemmningin í húsinu ótrúlegt. Pétur Rúnar sagði meðal annars að það væri ótrúlegt að spila í svona stemmningu eftir leik. Hluti af stuðningmönnum Tindastóls gleymdu sér þó eitthvað í gleðinni. Ölvun var mikil á örfáum einstaklingum auk þess sem bekkur í stúkunni var brotinn. Myndir af því má finna hér að neðan.


Aðilar í Borgarnesi sem Karfan.is talaði við í gær voru heilt yfir ánægðir með áhorfendur leiksins. Þeir gæfu leiknum meira vægi og gaman væri að sjá marga stuðningsmenn frá útiliði í húsinu. Einhverjar útistöður hafi verið en það væri hluti af spennuleik sem þessum.
Stuðningsmannahópur Tindastóls Grettismenn sendu Karfan.is yfirlýsingu fyrr í dag þar sem Borgnesingar fá formlega afsökunarbeðni. Framkoma nokkra stuðningsmanna hafi ekki verið sú sem Grettismenn vilji vera þekkt fyrir. Að lokum þakka þeir fyrir frábæra stemmningu í Fjósinu. Aðsökunarbeðnina má sjá í heild sinni hér að neðan:
Ég vil biðjast afsökunar fyrir hönd stuðningsmanna Tindastóls fyrir athæfi nokkurra stuðningsmanna á leiknum í Borgarnesi í gær.
Framkoma sem þeir sýndu er ekki sú sama og við viljum að endurspegli stuðningssveitina Grettismenn og viljum við viðhalda okkar ímynd sem er að hvetja, syngja, hafa gaman en einnig að koma vel fram og sýna virðingu. Það leynast þó stundum skemmd epli en það er ekkert annað en til að læra af og við pössum að svona athæfi komi ekki upp aftur.
Við biðjum Borgnesinga afsökunar fyrir skemmdum og öðru sem átti sé stað á leiknum, við berum virðingu fyrir Borgarnesi og þökkum þeim einnig fyrir frábæra stemmingu í Fjósinu í gær.
Kveðja, Bjarni Gíslason – Grettismaður
Ljóst er af samskiptum síðasta sólarhringsins að gríðarleg gagnvirk virðing er á milli félaganna. Leikir félaganna hafa verið stórskemmtilegir í gegnum tíðina og ljóst að það mun ekki breytast í bráð.




