HomeFréttirGrétar snýr aftur - Erum ekki þessir reynslulausu nýliðar eins og margir...

Grétar snýr aftur – Erum ekki þessir reynslulausu nýliðar eins og margir héldu

Drekinn gerir sig breiðan í kvöld enda rík ástæða til, topplið Grindavíkur mætir í Icelandic Glacial Höllina í Þorlákshöfn og krafthúsakappinn Grétar Ingi Erlendsson snýr aftur í raðir Þórsara eftir erfið hnémeiðsli. Karfan.is ræddi við Grétar sem með mikilli vinnu er komin af stað fyrr en gert var ráð fyrir. Þórsarar eru hörkutöffarar segir Grétar og segir nýliðana ekki jafn reynslulausa og margir töldu í fyrstu.
,,Ég ætla að vera með í kvöld, er kominn svolítið fyrr af stað en ég gerði ráð fyrir en í upphafi átti ég að vera tilbúinn um miðja úrslitakeppni. Ég hef unnið vel í mínum málum, verið duglegur að lyfta og í sjúkraþjálfun, maður verður bara að gera þetta, bíta á jaxlinn og koma sér í gírinn," sagði Grétar sem var með ansi laskað hné. Þar var að finna rifinn liðþófa, slitið liðband og ónýta sin.
 
,,Þetta var svona sittlítið af hverju en með réttu hugarfari og fylgja leiðbeiningum lækna hafðist þetta. Vissulega var þetta mikið bakslag og ég spilaði nánast alla fyrri umferðina á öðrum fæti en var alltaf ákveðinn í því að koma sterkari til baka," sagði Grétar og viðurkenndi að erfitt væri að fylgjast með af bekknum.
 
,,Þetta er það versta sem íþróttamenn lenda í, að geta ekki tekið þátt og þurfa að fylgjast með. Það eru hörku töffarar í Þórsliðinu og þeir hafa spjarað sig enda alvöru menn," sagði Grétar en Þórsarar stefna nú að því að ná heimaleikjarétti í úrslitakeppninni.
 
,,Við ætlum að fara eins langt og við komumst. Öll þessi lið í pakkanum í kringum okkur vilja berjast um titil og þar erum við engin undantekning. Við þurfum ekkert að vera bangnir við eitt né neitt því við getum spilað við öll þessi lið og þau þurfa virkilega að spá í okkur. Við erum ekki þessir reynslulausu nýliðar eins og margir héldu í byrjun."
 
Þór er eina liðið sem unnið hefur Grindavík í Iceland Express deildinni þetta tímabilið og það í Röstinni í Grindavík. ,,Menn hér eru ekkert hræddir við Grindvíkinga, hér ætla menn bara að fara í leikinn og klára þetta dæmi, það er bara þannig. Við erum eina liðið sem hefur unnið þá í deildinni svo þeir koma brjálaðir í leikinn en vita vel að við getum spilað. Þó svo Grindavík sé deildarmeistari þá þykist ég vita að þeir séu ekki saddir svo við mætum tilbúnir," sagði Grétar og aðspurður hvort hann væri ekki búinn að kynda vel upp í Drekamönnum fyrir kvöldið svaraði kappinn:
 
,,Drekinn verður klár, það þarf ekkert að ,,mótivera" þá fyrir svona leiki, þeir vita hvað er í húfi!"
 
Fréttir
- Auglýsing -