Greifinn er nú einn af aðal styrktaraðilum körfuknattleiksdeildar Þórs. Um liðna helgi undirrituðu forráðamenn körfuknattleiksdeildar Þórs á Akureyri og eigendur Greifans veitingahúss nýjan samstarfs- og styrktarsamning. Undirritunin fór fram í íþróttahúsinu við Síðuskóla milli leikja á hinu árlega Greifamóti í körfubolta, en það mót er eitt af þeim verkefnum sem Greifinn hefur komið að til fjölda ára. Thorsport.is greinir frá.
Körfuknattleiksdeild Þórs og Greifinn hafa gott samstarf mörg undanfarin ár og með þessum nýja samningi verður Greifinn einn af aðal styrktaraðilum körfuknattleiksdeildar og að sögn Ómars Aspar gjaldkera körfuknattleiksdeildar er vilji beggja aðila til áframhaldandi samstarfs.
Það var Arinbjörn Þórarinsson framkvæmdastjóri Greifans sem undirritaði samninginn fyrir hönd fyrir hönd fyrirtækisins og Stefán Vilberg Leifsson formaður körfuknattleiksdeildar fyrir hönd Þórs.