HomeFréttirGovens til Ísrael

Govens til Ísrael

Bandaríkjamaðurinn Darrin Govens hefur samið við Elitzur Ramala í Ísrael en liðið leikur í næstefstu deild. Govens er Íslendingum að góðu kunnur en hann fór hamförum með nýliðum Þórs úr Þorlákshöfn á síðasta tímabili og stýrði þeim til silfurverðlauna eftir úrslitaeinvígið gegn Grindavík.
Það mátti svo sem fastlega gera ráð fyrir því að Govens myndi ekki leika í íslensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir frammistöðu sína á þeirri síðustu og nú er það Ísraelsmanna að njóta hæfileika þessa öfluga leikmanns.
 
Elitzur leikur eins og fyrr greinir í næstefstu deild í Ísrael og missti liðið rétt svo af úrslitakeppninni þar á síðasta tímabili.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -