KR-ingar mættu ákveðnir til leiks í HS Orku-höllinni í kvöld og unnu afgerandi 27 stiga sigur á Grindavík, 106–79, í árlegum leik Meistara meistaranna.
Eftir að heimamenn höfðu haft frumkvæðið í upphafi sýndi Vesturbæjarliðið mikla yfirburði á báðum endum vallarins, gerði út um leikinn með frábæru áhlaupi fyrir hlé og leit aldrei til baka.
Rætt var við Þóri Guðmund Þorbjarnarson, fyrirliða KR, eftir leik og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.




