HomeBónus deildinBónus deild karlaGoðsögn Njarðvíkur fagnar stórafmæli

Goðsögn Njarðvíkur fagnar stórafmæli

Einn öflugasti leikmaðurinn í sögu Njarðvíkur fagnar fimmtugsafmæli sínu í dag. Páll Kristinsson á að baki glæsilegan feril með félaginu þar sem hann vann nánast allt sem hægt var að vinna á sínum tíma. Hann var lykilmaður í liðinu sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn árin 1995, 1998 og 2002, auk þess sem hann fagnaði bikarmeistaratitlum árin 1999, 2002 og 2005.

Yfirburðir hans og tryggð við klúbbinn sjást vel á sögulegum tölum hans úr úrvalsdeildinni og úrslitakeppninni. Páll klæddist grænu treyjunni í samtals 376 leikjum sem skipar honum í fimmta sæti yfir leikjahæstu menn í sögu klúbbsins. Hann var jafnframt iðinn við kolann í stigaskorun og undir körfunni, en hann situr í áttunda sæti yfir stigahæstu leikmenn Njarðvíkur með 3449 stig og í þriðja sæti yfir þá frákastahæstu með 1925 fráköst. Á feril sínum lék hann einnig fyrir USC Spartans í bandaríska háskólaboltanum og Grindavík. Frá árinu 1995 til 2004 lék Páll einnig 54 leiki fyrir A landslið Íslands.

Hér fyrir neðan óskar Njarðvík honum til hamingju með stórafmælið:

Fréttir
- Auglýsing -