spot_img
HomeBikarkeppniGlæsileg VÍS bikarvika á enda - Sigursælustu félögin unnu titilinn í enn...

Glæsileg VÍS bikarvika á enda – Sigursælustu félögin unnu titilinn í enn eitt skiptið

Frábærri VÍS bikarviku er nú lokið í Smáranum í Kópavogi, en þar fóru fram fjölmargir undanúrslita- og úrslitaleikir í VÍS bikarkeppninni frá þriðjudegi síðasta þangað til í gær.

Stærstu titlar karla- og kvenna fóru til þeirra félaga sem unnið hafa bikarinn oftast, KR og Keflavík. Bikarinn fór í Vesturbæinn í þrettánda skiptið og í Keflavík í það sautjánda. Hér neðst má sjá skiptingu milli félaga frá því bikarinn var fyrst spilaður árið 1975, en í heild hafa þrettán félög unnið hann í karlaflokki og ellefu í meistaraflokki kvenna.

Ásamt því að leikin voru undanúrslit og úrslit í meistaraflokkum voru bikarúrslitaleikir í sjö yngri flokkum. Sigursælast þessa helgina var félag Stjörnunnar úr Garðabæ, en samantekið vann Stjarnan til 3 gullverðlauna og 2 silfur. Þar á eftir voru Fjölnir með 2 gullverðlaun og KR og Valur með 1 gullverðlaun og 2 silfur hvort um sig. Hér fyrir neðan má sjá þau félög sem unnu til verðlauna í VÍS bikarvikunni.

Sigurvegarar VÍS bikarvikunnar 2026:

  1. Stjarnan – 3 gull/2 silfur
  2. Fjölnir – 2 gull
  3. KR og Valur – 1 gull/ 2 silfur
  4. Keflavík og Njarðvík – 1 gull
  5. ÍA og Selfoss – 1 silfur

Hér má sjá umfjöllun um alla leiki VÍS bikarvikunnar.

Flestir bikarmeistaratitlar meistaraflokki karla 1970-2026:


13 KR (1970, 71, 72, 73, 74, 77, 79, 84, 91, 2011, 16, 17, 26)
  9 Njarðvík (1987, 88, 89, 90, 92, 99, 2002, 05, 21)
  7 Keflavík (1993, 94, 97, 2003, 04, 2012, 2024)
  6 Stjarnan (2009, 2013, 2015, 2019, 2020, 2022)
  5 Grindavík (1995, 98, 2000, 06, 14)
  5 Valur (1980, 81, 83, 23, 25)
  3 Haukar (1985, 86, 96)
  2 Ármann (1975, 76)
  2 ÍR (2001, 07)
  2 Snæfell (2008, 2010)
  1 Tindastóll (2018)
  1 ÍS (1978)
  1 Fram (1982)

Flestir bikarmeistaratitlar meistaraflokki kvenna 1970-2026:

17 Keflavík (1988, 89, 90, 93, 94, 95, 96, 97, 98, 2000, 04, 11, 13, 17, 18, 24, 26)
10 KR (1976, 77, 82, 83, 86, 87, 99, 2001, 02, 09)
 9 Haukar (1984, 92, 2005, 07, 10, 14, 21, 22, 23)
 7 ÍS (1978, 80, 81, 85, 91, 2003, 06)
 2 Grindavík (2008, 2015)
 2 Njarðvík (2012, 25)
 1 Valur (2019)
 1 Snæfell (2016)
 1 Þór Akureyri (1975)
 1 ÍR (1979)
 1 Skallagrímur (2020)

Hér má lesa meira um sögu bikarúrslita

Fréttir
- Auglýsing -