HomeÚti í heimiEvrópaGlæsileg nýting Tryggva dugði Bilbao ekki til sigurs

Glæsileg nýting Tryggva dugði Bilbao ekki til sigurs

Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Surne Bilbao áttu erfiðan dag í spænsku ACB-deildinni þegar þeir sóttu UCAM Murcia heim. Leiknum lauk með öruggum sigri Murcia, 100–81, en heimamenn sýndu af hverju þeir sitja í 3. sæti deildarinnar.

Þrátt fyrir tapið átti Tryggvi Snær mjög góðan leik á þeim 21 mínútu sem hann spilaði. Hann var nánast óstöðvandi í teignum, skoraði 16 stig og nýtti 6 af 7 skotum sínum úr leik (86%). Þá tók hann 8 fráköst og endaði með 26 framlagspunkta, sem var það hæsta í liði Bilbao.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -