Rétt í þessu lagði Ísland lið Portúgal í Ólafssal í undankeppni EuroBasket 2027, 62-60.
Leikurinn var sá fyrsti sem Ísland vann síðan í nóvember 2024, en þá lögðu þær Rúmeníu heima í undankeppni heimsmeistaramóts. Ísland var í þriggja liða riðil í þessari keppni með Portúgal og Serbíu, en hinum leikjunum hafði Ísland tapað.
Ísland hafnar því í þriðja sæti riðilsins og þarf að treysta á hagstæð úrslit í öðrum riðlum til að eiga möguleika á að komast áfram, þá sem það lið sem er með betri árangur liða sem enda í þriðja sæti síns riðils.
Frekari umfjöllun, viðtöl og myndir eru væntanlegar á Körfuna innan skamms.





