Hlynur Bæringsson er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og sagði í viðtali við Vísir.is að "prógrammið" hjá þeim Svartfellingum væri gjörspillt. "Svo var þessi Kani hjá þeim svakalega góður í seinni hálfleik. Það er ótrúlegt að vera að tala um Kana í landsleikjum. Þetta er gjörspillt apparat hjá þeim." sagði Hlynur og vísaði í Taylor Rochestie sem vissulega er að uppruna Bandaríkjamaður en með vegabréf frá Svartfjallalandi.
Taylor var svo sannarlega maðurinn á bakvið sigur Svartfellinga þegar hann setti upp skot sýningu í seinni hálfleik og fullyrðir undirritaður að sigurinn hefði orðið íslenskur hefðu Svartfellingar ekki haft hann innan sinna raða.
Orðið á götunni hermir að austantjalds löndin stundi þetta, það er að finna sér sterka bandaríkjamenn og bjóði þeim ríkisfang og jafnvel greiðslu til að koma og spila fyrir landsliðið þó þeir hafi aldrei svo mikið sem stigið fæti innfyrir landamæri tiltekins lands.
Umræðan um þetta hefur þó einnig skapast hér á íslandi. Okkur vanti eitt púsl í spilið hjá okkur til að vera virkilega samkeppnishæfir. Þá er helst verið að tala um 7 feta hátt púsl, kjötað púsl sem yrði plantað inní teig að slást við þá íturvöxnu menn sem virðast vaxa á trjám allstaðar annarstaðar en á íslandi.
Benedikt Guðmundsson þjálfari Þórsarar í Þorlákshöfn sagði í viðtali við RÚV að liðið vantaði eins og hann orðaðið það einn 210 cm "frystitogara" inní teiginn til að vera samkeppnishæfir við þessi lönd og að ísland ætti einfaldlega að splæsa í eitt stykki ríkisborgararétt fyrir svoleiðis mann. Bætti Benedikt við að mörg lönd stæðu í þessum "viðskiptum" og að meira segja U-20 landsliðin sem hann hefði þjálfað gegn væru byrjuð á slíkum hrókeringum.
Í viðtali við RÚV sagði Peter Öqvist að það myndi vissulega gera starfið auðveldara og að betri úrslit í leikjum myndu líta dagsins ljós en bætti svo við að hann virði það meira að KKÍ skuli ekki fara út í slíkar hugleiðingar því það gæfi þá ungum íslenskum leikmönnum kost á sæti í liðinu.
Sitt sýnist hverjum um þessi mál og því höfum við sett á stað könnun á síðunni og hvetjum við ykkur til að henda atkvæði á það hvort við ættum jafnvel að taka þátt í því að fá erlenda leikmenn í landslið okkar.




