spot_img
HomeFréttirGjöf sem heldur áfram að gefa

Gjöf sem heldur áfram að gefa

Það verður hvergi logið til um hæfileika James Harden í körfuknattleik…í það minnsta á öðrum helmingi vallarins. Fáir ef nokkrir velkjast í vafa um sóknarhæfileika James Harden en kappinn hefur hvað eftir annað verið hylltur og jafnvel talað um að hann geri tilkall til MVP deildarinnar. En þarf ekki besti leikmaður NBA deildarinnar að spila varnarleik líka?  Harden hefur í gegnum tíðina verið gagnrýndur fyrir slakan varnarleik sinn og raddir þess efnis voru ansi háværar þegar heimsmeistaramótið á Spáni fór fram hér fyrir nokkrum árum. 

 

Í vikunni í leik gegn Detroit Pistons tók Harden hinsvegar auka skref í slökum varnarleik sínum og skrifast þetta á ekkert annað en leti. Dæmi nú hver fyrir sig. 

 

 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -