Stuðningsmannasveit ÍR sem hefur heldur betur látið mikið fyrir sér fara síðustu vikur og mánuði og halda enn áfram að bæta í. Fyrir einvígið gegn Stjörnunni í átta liða úrslitum setti stuðningsmannasveitin í Snachat reikning þar sem fylgjast má með þeirra upphitun fyrir leikinn stóra í Hellinum í dag.
Samkvæmt heimildum Karfan.is má búast við óvæntum uppákomum á Snapchatinu hjá þeim Ghetto Hooligans í dag. Í raun eitthvað sem engin ætti að láta fram hjá sér fara. Nafnið þeirra er "ghettohooligans" og hægt er að bæta þeim við með því að taka mynd af myndinni hér að neðan:

Leikur ÍR og Stjörnunnar hefst kl 16:00 í Hertz-Hellinum og er í beinni útsendingu á Stöð 2 sport. Hægt er að kaupa miða á leikinn hér og forðast biðraðir.
Séu fleiri stuðningsmannasveitir með virk snapchöt má senda skilaboð á [email protected] auk þess sem Karfan.is snappið er laust fyrir stuðningsmannasveitir sem hafa áhuga að sýna frá stemmningu á leikjum og undirbúning.




