spot_img
HomeFréttirGhetto Hooligans fóru illa með græna drekann í gær

Ghetto Hooligans fóru illa með græna drekann í gær

ÍRingar sóttu sterkan sigur til Þorlákshafnar í gær er liðin mættust í 20. umferð Dominos deildar karla. Stuðningsmannasveitin Ghetto Hooligans fylgdu sínum mönnum til hafnarinnar með eftirminnilegum hætti. Þar mættu þeir stuðningsmannasveit Þórs sem hefur haft nafnið Græni drekinn þó lítið hafi farið fyrir þeirri sveit með formlegum hætti að undanförnu. 

 

Þeir félagar voru meðal annars með Karfan.is snapchat reikninginn í gær og byrjuðu daginn á ansi hressum „banter“. Þar settu þeir upp nokkurnvegin bænastund þar sem einkennislag þeirra „CoCo“ með O.T. Genasis. Að lokum tóku þeir grænan dreka og fóru ansi illa með hann og henntu honum svo á ÍR treyju. Þeir fóru því illa með grænan dreka í bókstaflegri merkingu en ekki hefur fengist formleg niðurstaða í baráttu sveitanna sjálfra. 

 

Sjón er sögu ríkari en Bóbó Daníelsson einn af forsprökkum stuðningsmannasveitarinnar var í viðtali hjá Karfan.is í byrjun vikunnar þar sem hann sagði frá vinskapnum og metnaði félagsins. Myndbandið má sjá hér að neðan:

 

 

Stuðningsmannasveitin hefur heldur betur slegið í gegn en ÍR mætir Njarðvík í Ljónagryfjunni á mánudaginn í þýðingarmiklum leik og líklegt að þeir félagar elti liðið til Reykjanesbæjar.

Fréttir
- Auglýsing -