spot_img
HomeBikarkeppniGeysisbikar úrslit kvöldsins: Valur, Haukar og KR í Höllina

Geysisbikar úrslit kvöldsins: Valur, Haukar og KR í Höllina

Þrír leikir voru á dagskrá í 8 liða úrslitum Geysisbikars kvenna í dag.

Valur lagði Breiðablik í Origo Höllinni, Haukar höfðu betur gegn Grindavík í Ólóafssal og í Keflavík bar KR sigurorð af heimakonum.

Síðasti leikur 8 liða úrslitanna er svo annað kvöld þegar að ÍR tekur á móti Skallagrím í Hellinum.

Undanúrslitin fara svo fram í Laugardalshöllinni um bikarhelgina, en dregið verður í hádeginu á þriðjudaginn um hvaða lið það verði sem mætist þá.

Úrslit kvöldsins

Geysisbikar kvenna:

Valur 89 – 59 Breiðablik

Haukar 81 – 54 Grindavík

Keflavík 60 – 82 KR

Fréttir
- Auglýsing -