spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaGeysisbikar leikir dagsins: Hvaða lið tryggja sér sæti í undanúrslitunum?

Geysisbikar leikir dagsins: Hvaða lið tryggja sér sæti í undanúrslitunum?

Þrír leikir 8 liða úrslita Geysisbikars karla fara fram í kvöld.

Fjölnir tekur á móti Keflavík í Dalhúsum, Stjarnan og Valur mætast í MGH og á Höfn í Hornafirði eigast við heimamenn í Sindra og Grindavík.

Síðasti leikur 8 liða úrslitanna fara svo fram á morgun. Upphaflega átti Tindastóll að mæta Þór Akureyri í kvöld, en leiknum hefur verið frestað til morguns vegna færðar.

Þá fer fram síðasti leikur 8 liða úrslita Geysisbikars kvenna þegar að ÍR tekur á móti Skallagrím í Hellinum, en í gær tryggðu KR, Valur og Haukar sér farseðil í undanúrslitin.

Undanúrslitin fara svo fram í Laugardalshöllinni um bikarhelgina, en dregið verður í hádeginu á þriðjudaginn um hvaða lið það verði sem mætist þá.

Leikir dagsins

Geysisbikar karla:

Fjölnir Keflavík – kl. 19:15

Tindastóll Þór Akureyri – Frestað til morguns

Stjarnan Valur – kl. 19:30

Sindri Grindavík – kl. 20:00

Geysisbikar kvenna:

ÍR Skallagrímur – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -