spot_img
HomeBikarkeppniGeysisbikar leikir dagsins: Hvaða lið komast í Höllina?

Geysisbikar leikir dagsins: Hvaða lið komast í Höllina?

Þrír leikir eru á dagskrá í 8 liða úrslitum Geysisbikars kvenna í dag.

Valur tekur á móti Breiðablik í Origo Höllinni, Haukar og Grindavík mætast í Hafnarfirði og í Blue Höllinni í Keflavík eigast við heimakonur og KR.

Síðasti leikur 8 liða úrslitanna er svo annað kvöld þegar að ÍR tekur á móti Skallagrím í Hellinum.

Undanúrslitin fara svo fram í Laugardalshöllinni um bikarhelgina, en dregið verður í hádeginu á þriðjudaginn um hvaða lið það verði sem mætist þá.

Leikir dagsins

Geysisbikar kvenna:

Valur Breiðablik – kl. 18:00

Haukar Grindavík – kl. 18:00

Keflavík KR – kl. 19:30

Fréttir
- Auglýsing -