Um helgina var dregið í riðla fyrir Evrópumótið í Litháen í haust. Óhætt er að segja að gestgjafar Litháa hafi lent í sterkasta riðlinum en auk þeirra eru þar ríkjandi meistarar Spánverja, silfurhafarnir frá síðasta heimsmeistaramóti Tyrkir eru í sama riðli auk Póllands, Bretlands og liðs úr umspili. Þrjú lið munu leika í umspili sem mun fara fram í ágúst þar sem Finnar, Ungverjar og Portúgalir keppa um tvö laus sæti á EM. www.kki.is greinir frá.
Ólafur Rafnsson, forseti FIBA Europe, sagði það vel við hæfi að hefja nýtt keppnisfyrirkomulag lokakeppninnar í Litháen þar sem körfubolti er vinsælasta íþrótt landsins og markmið stækkun lokakeppninnar er einmitt að gera flaggskip körfuboltans í Evrópu sem glæsilegast. Nú í fyrsta sinn taka 24 þjóðir þátt í lokamótinu í stað 16 áður.
Mótið hefst í byrjun september. Fyrsta umferð verður leikin í Alytus, Šiauliai, Panev?žys og Klaip?da. Önnur umferð fer fram í Vilnius og úrslitin svo í Kaunas.
Riðlar í fyrstu umferð EM 2011:
A-riðill:
Spánn
Tyrkland
Litháen
Bretland
Pólland
og lið úr öðru sæti í umspili
B-riðill:
Serbía
Frakkland
Þýskaland
Ísrael
Ítalía
Lettland
C-riðill:
Grikkland
Króatía
Svartfjallaland
Makedónía
Bosnía
og lið úr fyrsta sæti í umspili
D-riðill:
Slóvenía
Rússland
Belgía
Georgía
Búlgaría
Úkraína
Vefur keppninnar: www.eurobasket2011.org
Mynd/ Linas Kleisa og félagar í Litháen verða á heimavelli.




