HomeNeðri deildir1. deild karlaGerir tveggja ára samning

Gerir tveggja ára samning

Skallagrímur hefur gert tveggja ára samning við Eirík Frímann Jónsson, sem snýr þar með aftur til félagsins.

Eiríkur segist fara inn í tímabilið með það hugarfar að ná fram gleðinni á nýjan leik með því að spila skemmtilegan körfubolta, bæði fyrir liðið sjálft og fólkið í samfélaginu.

Skemmtileg staðreynd fylgdi einnig tilkynningu félagsins en Eiríkur hóf ekki að æfa íþróttina fyrr en hann var kominn í sjöunda bekk.

Fréttir
- Auglýsing -