HomeBónus deildinBónus deild kvennaGerir tveggja ára samning í Garðabænum

Gerir tveggja ára samning í Garðabænum

Stjarnan hefur gengið frá tveggja ára samningi við Ísabellu Fjeldsted Magnúsdóttur.

Ísabella er uppalin hjá Haukum, þar sem hún lék í gegnum alla yngri flokkana. Hún á að baki landsliðsreynslu en hún lék með U15 landsliðinu fyrir tveimur árum og var í æfingahóp fyrir U16 á síðasta ári.

Hjá Garðabæjarfélaginu ríkir mikil ánægja með komu hennar og er hlakkað til að sjá hana á gólfinu í Ásgarði í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -