Jökull Otti Þorsteinsson skrifar undir tveggja ára samning við Breiðablik.
Jökull hefur um árabil verið einn efnilegasti leikmaður sterks 2007 árgangs hjá félaginu og einn af máttarstólpum ungmenna- og 12. flokks síðustu leiktíð. Þá hefur hann einnig verið með meistaraflokki félagsins í fyrstu deild karla.