Í kvöld fór fram þriðji leikur Vals og Grindavíkur í 8 liða úrslitum Bónusdeildar kvenna. Staðan fyrir leikinn var 2-0 fyrir gestina frá Grindavík. Því ljóst að Valsstelpur mættu til leiks með bakið kyrfilega upp við vegg. Báðir leikirnir hingað til hafa verið jafnir og spennandi og því mátti búast við hörkuleik.
Leikurinn var aldrei spennandi, Grindavík sláturðu fyrsta leikhluta, héldu haus í öðrum leikhluta og þrátt fyrir mikla ákefð vrá Valskonum í þeim þriðja, þá var forysta gestanna mjög mikil. Valskonur héldu áfram að reyna að saxa á forstkotið en forskotið var bara of mikið og Grindavík sigraði sanngjarnt 72-90.
Karfan spjallaði við Þorleif Ólafsson þjálfara Grindavíkur eftir leik í N1 höllinni.




