Þó Þorlákshöfn hefur samið við rúmenska framherjann Antoanetu Alexe um að leika með kvennaliði félagsins á komandi keppnistímabili.
Alexe er fædd árið 2001 og er 182 sentímetrar á hæð. Hún býr yfir reynslu úr bandaríska háskólaboltanum, þar sem hún lék með Winthrop University og Long Island University, auk þess að hafa spilað í efstu deild í Rúmeníu undanfarin ár. Á síðasta tímabili lék hún með Agronomia Bucuresti í heimalandinu þar sem hún skilaði 11,7 stigum, 5,8 fráköstum og 1,4 stoðsendingum að meðaltali í leik.
Forráðamenn Þórs lýsa Alexe sem fjölhæfum og kraftmiklum leikmanni sem geti leyst fleiri en eina stöðu á vellinum, og binda þeir miklar vonir við að hún muni reynast nýju kvennaliði félagsins mikill styrkur í vetur.




