HomeBónus deildinBónus deild karlaGengur til liðs við Sindra

Gengur til liðs við Sindra

Sindri heldur áfram að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi tímabil í Bónusdeild karla og hefur samið við bakvörðinn Branislav Vujadinovic.

Vujadinovic er 196 sentímetrar á hæð og býr yfir víðtækri reynslu úr atvinnumennsku í Evrópu. Hann lék háskólabolta í Bandaríkjunum með Assumption College en hefur síðan leikið í Serbíu, Slóveníu, Rúmeníu, á Spáni og í Bosníu. Á síðasta tímabili spilaði hann með Jahorina Pale í Bosníu, þar sem hann skilaði 11,5 stigum, 5,5 fráköstum og 4,0 stoðsendingum að meðaltali í leik og var jafnframt stoðsendingahæsti maður liðsins.

Hornfirðingar binda miklar vonir við nýja leikmanninn og lýsa honum sem stórum og sterkum bakverði sem geti bæði búið til stig fyrir sjálfan sig og félaga sína, tekið þátt í frákastabaráttunni og stýrt leik liðsins af festu. Telur félagið að mikil reynsla hans og leikskilningur muni styrkja hópinn verulega fyrir átökin sem fram undan eru í deild þeirra bestu.

Fréttir
- Auglýsing -