KR hefur samið við Sturlu Böðvarsson og gildir samningurinn út tímabilið 2026-2027.
Sturla, sem er fæddur árið 2008, er uppalinn hjá Snæfelli í Stykkishólmi þar sem hann lék bæði í yngri flokkum og með meistaraflokki í 1. deild karla. Á síðasta tímabili var hann með 12,9 stig og 6,1 frákast að meðaltali í leik. Hann hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og spilaði með U18 landsliðinu á Norðurlandamótinu og U18 EuroBasket í sumar.
Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, segir Sturlu mikið efni og fagnar því að fá hann í Vesturbæinn til að taka næstu skref í sínum ferli.




