Magni Thor Grissom hefur staðfest komu sína í Bryant University í Bandaríkjunum fyrir næsta tímabil. Magni, sem á íslenska foreldra en ólst upp vestanhafs, hefur verið lykilmaður í yngri landsliðum Íslands. Hann þakkaði þjálfurum sínum hjá Darrow School fyrir stuðninginn og kveðst tilbúinn í slaginn með háskólaliðinu á næsta tímabili í færslu á samfélagsmiðlum.




