Framherjinn Jalen Green hefur skrifað undir samning við Þórs fyrir komandi tímabil. Green er 203 cm á hæð og kemur til liðsins eftir glæsilegt tímabil í Austurríki þar sem hann leiddi lið sitt í úrslit og hafnaði í öðru sæti í kjöri á besta varnarmanni deildarinnar, en áður lék hann í Lúxemborg.
Þrátt fyrir hæðina býr hann samkvæmt tilkynningu yfir mikilli boltafærni og skilaði frábærri skotnýtingu á síðustu leiktíð, meðal annars 37% í þriggja stiga skotum. Hjá Þór er mikil ánægja með komu Green og eru forráðamenn sannfærðir um að hæfileikar hans og vinnusemi muni gera hann að lykilmanni í liðinu í vetur.



